Afkvæmi hugsana minna
Myndir
19.12.2007 13:28:06 / hildursi

Ég er stolt :D

Jahá... það hefðu væntanlega fæstir trúað því sem ég er að fara að segja ykkur núna.

Þannig er nefnilega mál með vexti að ég hef verið að vinna núna þrjú kvöld í viku í Vosbúð, sem btw er bara gaman, vildi bara að það væri meira rennerí allt kvöldið, ekki bara síðustu klukkutímana fyrir lokun... anyways þá er hann Bragi Magnússon, sonur Magga Braga tíður gestur þarna og hefur yfirleitt eins og ég verið með fulla nammipokana eða snakk eða eitthvað álíka og er hann víst jafn mikill nammigrís og ég ef ekki meiri. Þannig að ég skoraði á gaurinn í nammibindindi... já believe it.. Í DAG ERU 2 VIKUR síðan að ég borðaði síðast sælgæti! og ég er ótrúlega stolt af sjálfum mér, þó ég viti að þetta sé nún engin Everest fjallganga þá er þetta rosalegur áfangi fyrir mér. Hef ekki farið svona lengi án sælgætis frá því ég var líklega smábarn. Reyndar eru smákökur, diet gos og popp leyfilegt :D

Til að bæta líka gráu ofan á svart var komið með bala af nóa konfekti og macintosh nammi hérna á skrifstofun í dag og ég hef ekki fengið mér einn mola... en þessu líkur öllu núna á sunnudaginn (þorláksmessu)... ákváðum nú að vera ekki í einhverju banni yfir jólin :D 

vildi bara láta ykkur vita að ef ég get þetta, þá getið þið þetta líka

 Kveðja                                                                                                                                Hildur Sólveig nammigrís


» 1 hafa sagt sína skoðun

12.12.2007 22:28:42 / hildursi

Reykjarvíkurstuð

Já... keypti ekki margar jólagjafir síðustu helgi, en tók til í herberginu og komst í jólastuð, fór líka jólafimleikasýningu Ránar síðasta sunnudag sem var bara krúttleg :D

Já svo er morgundagurinn dekurdagur: litun og klipping, litun og plokkun og svo reyndar herjólfur seinni partinn þar sem ég tek ekki sjénsinn á að hann fari á föstudaginn.

Ætla að hitta elskuna mína sem ég hef ekki séð í hátt í 3 vikur, út að borða með pabba sem á afmæli á laugardaginn og Elínu, og reyna að hitta á ömmu lillu og afa sigga og jafnvel eitthvað af vinkonuhópnum og bekkjarsystkingum... busy schedule já og svo auðvitað skella mér í neytandabrjálæðið í höfuðborginni... bara gaman!

Heyrumst 


» 3 hafa sagt sína skoðun

07.12.2007 23:32:59 / hildursi

Ég kemst í hátíðarskap....

Ekki laust við það að maður sé orðin dálítið uppgefinn í lok vikunnar... er eiginlega nokkuð ánægð með að það sé laugardagur á morgun, sem þýðir FRÍÍÍÍÍ.

Þá ætla ég að koma mér í almennilegt hátíðarskap með jólaöli, piparkökum og jólalögum, en ég fékk sko smjörþefinn af því í kvöld þegar ég skellti mér út í göngu í jólasnjónum um hálfellefuleytið í kvöld með Nóa litla. Á göngunni hitti ég Kristínu og G á rúntinum en Kristín var búin að vera að velta því fyrir sér hver væri eiginlega svona mikill lúði á göngu með endurskinsmerki eins og maður var með í leikskóla og með hundinn líka í endurskini... svo var það bara ég LOL!!!!!!!!!!

 Planið fyrir helgina: klára nokkrar jólagjafir, taka jólahreingerningu í herberginu, fara í þrek og sund, slappa af og já þarf víst að klára að gera launin mín... alltaf gaman að vera sjálfstæður atvinnurekandi :D  Sjáum til hvernig þessi listi klárast á sunnudaginn...

 Jólakveðjur úr snjónum í Eyjum

Hildur Sólveig


» 1 hafa sagt sína skoðun

04.12.2007 00:28:23 / hildursi

Besta starf í heimi!

Vá hvað ég lifi draumalífi einhvers... spila billiard, ps3, horfi á enska boltann, spila og spjalla við ótrúlega skemmtilega og hressa krakka þrjú kvöld í viku OG FÆ BORGAÐ FYRIR ÞAÐ.

Ef þið hafið ekki tekið eftir því þá fíla ég nýju vinnuna mína í tætlur! 

Kv. Hildur Sólveig  


» 5 hafa sagt sína skoðun