|
|
31.01.2009 10:25:10 / hildursi
Jæja, fannst kominn tími á eina nýja færslu á árinu. Janúar er búinn að vera alveg hreint frábær. Helstu afrek janúarmánaðar: - Þrettándinn var snilld!, fór reyndar ekki á ballið þar sem ég átti leik á laugardeginum sem reyndar gekk ekki nógu vel - Mikið að gera í vinnunni eins og alltaf, fór á ráðstefnu í borginni um hjartaendurhæfingu og heimsótti pabba og Elínu á Skaganum - Var dugleg að losa verslanir við útsöludrasl  - Fór í skírn hjá Agnesi Evu frænku hans Sindra - Hélt upp á árs afmæli vatnsleikfiminnar m/ súkkulaðikökum og brauðréttum - ÍBV unnu HK sannfærandi í gær - djöfull var það gaman - Í kvöld er það svo Þorrablót Akoges með HAWAI þema... spennandi Jæja... nú er það ekkert nema dugnaður, taka aðeins til á meðan kallinn er fyrir sunnan, kíkja á skemmtilegu pappírsvinnuna upp á spítala  og svo er leikur hjá 3. flokkinum við HK á eftir.... nóg að gera
»
16.11.2008 00:02:44 / hildursi
Já... ákvað að skella inn smá pósti hérna... held að 1x á ári verði svona thing hjá mér  Anyways... dagurinn í dag búinn að vera flottur, ÍBV-ÍR í mfl. karla sem fór reyndar ekkert allt of vel Byrjaði að prjóna sem ég hef ekki gert síðan í 10. bekk.... Takk Steina snillingur! Fór í matarboð til tengdó þar sem ég og Gauti horfðum skellihlæjandi á Superhero myndina og við skötuhjúin ákváðum að labba heim en í leiðinni stríða Svövu Töru systur hans Sindra sem var að passa frændur sína fyrir Dóru Björk í Hátúni 4... það endaði auðvitað í snjóstríði og ég endaði upp á bílskúrsþaki auðvitað hreinn og klár sigurvegari  En þetta vakti upp ýmsar gamlar minningar úr Hátúninu... upp á þaki með svefnpoka eða teppi og hlustandi á stand by me og horfa á stjörnurnar... those were the times  Já frábær dagur að klárast og ég hlakka ekkert smá til að sjá hvað býr í skauti morgundagsins..... Ég kveð að sinni, hvenær ætli ég komi hingað aftur?
»
03.03.2008 16:50:20 / hildursi
Já... það er búið að vera frekar mikið að gera..maður verður alltaf að byrja á að afsaka bloggletina  Fór síðustu helgi aftur til Reykjavík á dag sjúkraþjálfunar og fór svo um kvöldið á Tapas barinn með nokkrum krökkum úr bekknum... namminamm! Á laugardaginn kíkti ég svo á geggjuðu íbúðina hennar Kolbrúnar Sólar og hitti þar Óla Jóa... þar var verið að þykjast horfa á úrslitaleik kk í bikarnum en í raun var ekkert gert annað en étið og spjallað... snilldin ein. Laugardagskvöldið fór svo í Vöku árshátíð sem bregst sjaldan og endað á Ölstofunni í einhverju rugli. Svo lagði ég í hann aftur til Eyja á sunnudagskvöldið í frekar mikilli ófærð að mínu mati en sem betur fer hafði ég einhvern fyrir framan mig alla leiðina  En þegar ég komk upp úr Herjólfi Ó MÆ GOD ég hef aldrei á ævinni séð svona ROSALEGA mikinn snjó!!! það glitti í bílþök hér og hvar um allann bæinn og ekki komst ég heim til mín  þar sem ekkert var búið að ryðja bæinn og því gisti ég bara hjá múttu minni (þá var ég líka viss um að komast í vinnuna). Anyways... svo er vinnudagurinn búinn að vera frekar rólegur þar sem heilir 5 mættu til mín í dag... þannig að ég hef getað sinnt pappírsvinnunni af alúð  Nú ætla ég að rjúka aftur upp á spítala eftir að vera búin að vera í 2klst pásu og athuga hversu margir ofurhugar mæta í hjartaleikfimina... Fönn, fönn, fönn, fönn, íslensk fönn!
»
03.02.2008 00:58:08 / hildursi
Já, ég vildi bara tilkynna það að frá og með 1. febrúar eigum við Sindri saman íbúð í Vestmannaeyjum! Hún er á Bröttugötu 7 en þetta er tvíbýli og á efri hæðinni býr gæðafólk! Íbúðin er 87 fermetrar og svo er 16 fermetra þvottahús og geymsla Það er nýbúið að taka eldhúsið og baðherbergið í gegn en síðustu tvær helgar hafa farið í búðarráp í raftækja- og húsgagnaverslanir í höfuðborginni og höfum við borið úr býtum: ísskáp, uppþvottavél, þvottavél, 42" sjónvarp, sófasett, eldhúsborð og stóla og ýmislegt fleira. Núna um helgina er búið að vera að mála og þrífa og reiknum við með að flytja fljótlega inn í höllina. Þvílíkur spenningur í gangi  Þar til seinna, vonandi ekki miklu seinna Hildur Sólveig Sigurðardóttir
»
07.01.2008 23:16:31 / hildursi
Jahá... Þrettándagleðin var tær snilld að vanda... byrjaði daginn á að fara góðan göngutúr með seppa... svo skellti ég mér í mat til Eyglóar ömmu hans Sindra og borðaði þar gómsætt læri með tengdó og Svövu Töru, eftir það lá leiðin að Hásteini þar sem horft var á rosalega flugeldasýningu í félagsskap Eyglóar, Aldísar og Magga og auðvitað lá leiðin svo beint að malarvellinum þar sem við vinkonurnar létum hræða úr okkur líftóruna .by the by við erum 24 ára!! en í alvörunni alveg frábært veður, fullt af fólki og ógeðsleg skrímsli. Eftr malarvöllinn var svo skellt sér upp á Smáragötu í heitt súkkulaði og með því og loks lagt af stað heim í sjæningu fyrir SSSól ballið í Höllinni... mætti fyrir ballið í partý heim til Smára Jökuls og það var BARA GAMAN og það var BARA ROSALEGA GAMAN á ballinu... úff! Endaði svo kvöldið á pizzupartýi um áttaleytið á sunnudagsmorgninum heima hjá Sigga Braga og Elísu verðandi foreldrum horfandi á áramótaskaupið '81.... tær snilld. Kveðja kveðja kveðja, Hildur Sólveig
»
19.12.2007 13:28:06 / hildursi
Jahá... það hefðu væntanlega fæstir trúað því sem ég er að fara að segja ykkur núna. Þannig er nefnilega mál með vexti að ég hef verið að vinna núna þrjú kvöld í viku í Vosbúð, sem btw er bara gaman, vildi bara að það væri meira rennerí allt kvöldið, ekki bara síðustu klukkutímana fyrir lokun... anyways þá er hann Bragi Magnússon, sonur Magga Braga tíður gestur þarna og hefur yfirleitt eins og ég verið með fulla nammipokana eða snakk eða eitthvað álíka og er hann víst jafn mikill nammigrís og ég ef ekki meiri. Þannig að ég skoraði á gaurinn í nammibindindi... já believe it.. Í DAG ERU 2 VIKUR síðan að ég borðaði síðast sælgæti! og ég er ótrúlega stolt af sjálfum mér, þó ég viti að þetta sé nún engin Everest fjallganga þá er þetta rosalegur áfangi fyrir mér. Hef ekki farið svona lengi án sælgætis frá því ég var líklega smábarn. Reyndar eru smákökur, diet gos og popp leyfilegt Til að bæta líka gráu ofan á svart var komið með bala af nóa konfekti og macintosh nammi hérna á skrifstofun í dag og ég hef ekki fengið mér einn mola... en þessu líkur öllu núna á sunnudaginn (þorláksmessu)... ákváðum nú að vera ekki í einhverju banni yfir jólin vildi bara láta ykkur vita að ef ég get þetta, þá getið þið þetta líka Kveðja Hildur Sólveig nammigrís
»
12.12.2007 22:28:42 / hildursi
Já... keypti ekki margar jólagjafir síðustu helgi, en tók til í herberginu og komst í jólastuð, fór líka jólafimleikasýningu Ránar síðasta sunnudag sem var bara krúttleg  Já svo er morgundagurinn dekurdagur: litun og klipping, litun og plokkun og svo reyndar herjólfur seinni partinn þar sem ég tek ekki sjénsinn á að hann fari á föstudaginn. Ætla að hitta elskuna mína sem ég hef ekki séð í hátt í 3 vikur, út að borða með pabba sem á afmæli á laugardaginn og Elínu, og reyna að hitta á ömmu lillu og afa sigga og jafnvel eitthvað af vinkonuhópnum og bekkjarsystkingum... busy schedule já og svo auðvitað skella mér í neytandabrjálæðið í höfuðborginni... bara gaman! Heyrumst
»
07.12.2007 23:32:59 / hildursi
Ekki laust við það að maður sé orðin dálítið uppgefinn í lok vikunnar... er eiginlega nokkuð ánægð með að það sé laugardagur á morgun, sem þýðir FRÍÍÍÍÍ. Þá ætla ég að koma mér í almennilegt hátíðarskap með jólaöli, piparkökum og jólalögum, en ég fékk sko smjörþefinn af því í kvöld þegar ég skellti mér út í göngu í jólasnjónum um hálfellefuleytið í kvöld með Nóa litla. Á göngunni hitti ég Kristínu og G á rúntinum en Kristín var búin að vera að velta því fyrir sér hver væri eiginlega svona mikill lúði á göngu með endurskinsmerki eins og maður var með í leikskóla og með hundinn líka í endurskini... svo var það bara ég LOL!!!!!!!!!! Planið fyrir helgina: klára nokkrar jólagjafir, taka jólahreingerningu í herberginu, fara í þrek og sund, slappa af og já þarf víst að klára að gera launin mín... alltaf gaman að vera sjálfstæður atvinnurekandi Sjáum til hvernig þessi listi klárast á sunnudaginn... Jólakveðjur úr snjónum í Eyjum Hildur Sólveig
»
04.12.2007 00:28:23 / hildursi
Vá hvað ég lifi draumalífi einhvers... spila billiard, ps3, horfi á enska boltann, spila og spjalla við ótrúlega skemmtilega og hressa krakka þrjú kvöld í viku OG FÆ BORGAÐ FYRIR ÞAÐ. Ef þið hafið ekki tekið eftir því þá fíla ég nýju vinnuna mína í tætlur! Kv. Hildur Sólveig
»
29.11.2007 22:18:34 / hildursi
Herjólfur í slipp 4.desember Viðgerð tekur minnst 2 daga Samkvæmt heimildum www.eyjar.net kom upp bilun um borð í Herjólfi og þarf skipið að fara í slipp í Hafnarfirði næsta þriðjudag. Mun Herjólfur sigla til Þorlákshafnar á þriðjudaginn og halda svo til Hafnarfjarðar þar báturinn fer í viðgerð.
Áætlað er að viðgerðin taki minnst 2 daga og er vonast til að Herjólfur fari frá Þorlákshöfn á hádegi föstudaginn 7.desember. Ég bara þoli ekki svona rugl.. o.k. ég veit það að ég ákvað að búa á Eyju, en ég ákvað að ég myndi búa á Eyju þar sem ég kæmist örugglega til Reykjavíkur með eins dags fyrirvara þó ég myndi þurfa að gista í Herjólfi í 3 klst. sem mér finnst bara fínt... en að leggja bara herjólfi fyrstu vikuna í desember þegar jólaundirbúningur er í hámarki og traffíkin mikil upp á land og bjóða enga varamöguleika er hreint út sagt... FÁRÁNLEGT Ég vona innilega að eyjar.net hafi rangar heimildir fyrir þessari frétt því svona atriði því miður er ólíðandi. Á þessum tíma ársins eru flugsamgöngur mjög óöruggar og fjöldi fólks þarf að sækja læknisþjónustu og ýmislegt annað á fasta landið sem það kemst ekki í hér. Held að liði væri hresst þó ég fari nú ekki lengra en á Selfoss ef það væri sagt í dag... nei nei það þarf að loka Suðurlandsveginum... hinkrið bara fram í næstu viku JÁ SÆLL! Ég er samt rosa hress  Kv. Hildur Sólveig, sjúkraþjálfari, aðstoðarþjálfari í handknattleik og frístundaleiðbeinandi.
»
15.11.2007 13:05:56 / hildursi
Eftir að hafa skoðað síðustu færsluna mína sé ég að matur skipar stóran sess í mínu lífi... e.t.v. of stóran sess... er það bölvun að þykja gott að borða? Kannski ekki ef maður hreyfir sig duglega með
»
12.11.2007 21:25:08 / hildursi
Ég skellti mér í stórborgina í tilefni opnunar stórverslunarinnar just4kids .....NEI GRÍN S.s. kom á fimmtudagskvöldið til RVK, skellti mér út að borða með kæró á Stælinn og kíktum eftir það á bjórkvöldi Vöku á Hressó þar sem við hittum allt ,,gamla" góða liðið og Krissa stratcaller sem átti afmæli þetta kvöld. Á föstudaginn var notið þess að sofa aðeins frameftirog svo var skotist í blóðbankann, og þegar ég kom heim í hádeginu var Sindri búin að töfra fram ljúffengan pastarétt... mmmmm Upp úr fjögur var svo kíkt á litlu fjölskylduna í Sæviðarsundi: De, Ee og Ernu Sólveigu , þar var því miður stoppað stutt en á þeim tíma tókst Sindra (í jakkafötum btw) að skipta um bleiju á nöfnu minni. Eftir þetta stopp var svo skellt sér í sjálft Alþingi í boði Sigurðar Kára þar sem við sníktum túr í gegnum húsið og enduðum á skrifstofu Sigurðar Kára með stjórn SUS. Eftir þetta var svo brunað upp á Akranes þar sem ég leit bróður minn augum í fyrsta skipti, það er sem sagt Porsche turbo 2002 ;D nýjasta leikfangið hans pabba en þau skötuhjónin buðu upp á gómsætan nachorétt sem ég mun pottþétt leika eftir einn góðan veðurdag. Upp er runninn laugardagur... þá var prófað að kíkja í Kringluna en ég var einhvern veginn ekki í búðarstuði... kannist þið við þetta??? ákvað bara að kaupa afmælisgjöf handa Kristínu Hartmanns og sælgæti og bruna í Safamýrina og sjá Framarana bursta okkur í handbolta... jæja strákar hvað er að frétta??? Í ALVÖRUNNI! svo skellti ég mér í heitu pottana í Laugardalnum með sártsöknuðum vinkonum mínum og fékk svo ljúffengan bita á Tapas barnum þar sem var rabbað saman langt fram á nótt. Á sunnudeginum var mikið kúrt og horft á sjónvarpið en gefið sér tími til að ganga í laugardalinn og gefa gæsum, öndum og dúfum. Ég ætla ekki að gefa heimferðinni nein ummæli..hvenær koma aftur göng?
»
20.10.2007 13:57:23 / hildursi
Sindri kom í gær, á föstudagseftirmiðdegi með herjólfi og ég gat m.a.s. hætt aðeins fyrr en venjulega í vinnunni til að hitta hann aðeins áður en hann fór á æfingu, á meðan hann var á fundi og æfingu með handboltanum skellti ég mér í þrek, ljósatíma (veit að það er óhollt en nammi er líka óhollt), sána og pottana og leið ekkert smá vel á eftir, þar á eftir voru hamborgarar hjá frú tengdó ekki slæmt það  Sindri tók sénsinn og kíkti til eyja þar sem útlit fyrir flug í dag leit ekkert voðalega vel út, við fórum í jarðarförina hjá Kristínu, blessuð sé minning hennar, og fljótlega eftir hádegi var komið flug... þannig að þessi elska er farin aftur..úfff Svo er árshátíð hjá spítalanum í kvöld, sindri kemur ekki, mamma er búin að vera í vinnu í rúman sólahring þannig að ég efa að hún komi... frekar erfitt að fara ein að djamma með sjúkrahúsliðinu, m.a.s. Kolbrún Sól er í sextugsafmæli þannig að hún kemur ekki heldur með mér, það er samt kannski bara ágætt... meiri pressa á að kynnast fólki betur  Þar til síðar... ég kveð með söknuði í dag
»
14.10.2007 22:06:51 / hildursi
Blessuð... vildi láta vita hvað væri að frétta úr Eyjunum, lífið gengur sinn vanagang þó það sé alltaf agalega fúlt að þurfa að kveðja Sindra á sunnudögum... Það er mikið að gera í vinnunni... yfirleitt alltaf frá 8-18 eða lengur... ætla reyndar að taka mig á aðeins í þessari viku og vinna aðeins styttra á daginn, svo maður hafi nú einhverja orku yfir helgarnar. sérstaklega þar sem það verður mikið að gera næstu helgar... árshátíð hjá spítalanum næsta laugardag og í vikunni þar á eftir er fimmtugsafmæli hjá Höllu Svo er ég líka búin að kaupa mér árskort í Nautilus og fer í einn eða tvo klukkutíma 5 sinnum í viku þannig að ég ætti að komast í kjólinn um jólinn.... nema ég verði orðin svo svakalegt vöðvabúnt Fór á ÍBV-HK áðan... þeir virðast ekki vera búnir að ná taktinum strákarnir þó svo að þeir hafi sýnt fínt spil á köflum... þetta hlýtur að fara að koma. Þar til síðar.... yfir og út!
»
05.10.2007 15:08:10 / hildursi
Ég verð sjúkraþjálfari í kvöld á leik ÍBV og AFTURELDINGAR, verst er að ég verð sjúkraþjálfari AFTURELDINGAR!! hversu slæmt er það vera á leikskýrslu í sama leik og Sindri er að keppa en vera bara með andstæðingnunum.... úfff vona að ég þurfi ekki að taka neinar krítískar ákvarðanir í þessum leik... spurning hvort að ég nái að halda faglegum heildindum  Allaveganna.... ÁFRAM ÍBV
»
Síður: 1 2 3 ... 7
|
|